Verkefnalýsing
Gefinn er strengur $S$ af lengd $N$, strengur $T$ af lengd $M$ og jákvæð heiltala $K$. Hver stafur í $S$ og $T$ er enskur lágstafur.
Látum $X$ vera strenginn sem fæst með því að endurtaka $S$ $K$ sinnum. Prentaðu Yes ef $T$ er hlutstrengur í $X$, en No annars. Hér á hlutstrengur í $X$ við streng sem fæst með því að eyða $0$ eða fleiri stöfum framan af $X$ og $0$ eða fleiri stöfum aftan af $X$.
Skorður
- $1 \le N \le 100$.
- $S$ er strengur af lengd $N$ sem samanstendur eingöngu af enskum lágstöfum.
- $1 \le M \le 100$.
- $T$ er strengur af lengd $M$ sem samanstendur eingöngu af enskum lágstöfum.
- $1 \le K \le 10^9$.
- $N, M, K$ eru heiltölur.
Undirverkefni
- ($25$ stig) $K = 1$.
- ($25$ stig) $K \le 100$.
- ($25$ stig) Hver stafur í $S, T$ er
a. - ($25$ stig) Engar viðbótarskorður.
Inntak
Inntakið er gefið á eftirfarandi sniði:
N S M T K
Úttak
Prentaðu Yes ef $T$ er hlutstrengur í $X$, en No annars.
Ekki prenta neitt annað en svarið. (Til dæmis skal ekki prenta texta sem biður um inntak.)
Varðandi snið svarsins má styðjast við æfingadæmin og sýnilausnir þeirra.
Dæmi 1
Inntak
4 joig 3 joi 1
Úttak
Yes
$X$ er joig, sem inniheldur joi sem hlutstreng. Því er prentað Yes.
Þetta inntaksdæmi uppfyllir skorður undirverkefna $1, 2, 4$.
Dæmi 2
Inntak
3 joi 4 joig 2
Úttak
No
$X$ er joijoi, sem inniheldur ekki joig sem hlutstreng. Því er prentað No.
Þetta inntaksdæmi uppfyllir skorður undirverkefna $2, 4$.
Dæmi 3
Inntak
4 aaaa 1 a 1000000000
Úttak
Yes
$X$ er strengur sem samanstendur af $4 \times 10^9$ eintökum af a, og hann inniheldur a sem hlutstreng. Því er prentað Yes.
Þetta inntaksdæmi uppfyllir skorður undirverkefna $3, 4$.