QOJ.ac

QOJ

حد الوقت: 1 s حد الذاكرة: 2048 MB

#24218. Espresso Macchiato

الإحصائيات

Tommy heldur upp á tvennt: borgarskipulag og espresso macchiato. Dagarnir hans eru þéttskipaðir, hann vinnur allan sólarhringinn og hann hefur varla mínútu aflögu til að staldra við og spjalla -- en maður verður að forgangsraða og kaffið hans skiptir hann miklu máli. Þannig að þegar honum er falið það verkefni að skipuleggja glænýja borg sér hann tækifæri sitt: að tryggja sér nákvæmlega einn macchiato á leiðinni í vinnuna, á hverjum einasta morgni, án nokkurs álags.

Borgin er $n \times n$ hnitakerfi. Heimili Tommys er í efra vinstra horninu og vinnustaðurinn hans í því neðra hægra. Hann er alltaf að flýta sér, svo á göngunni að heiman í vinnuna færir hann sig aðeins til hægri og niður.

Hann vill hanna borgina þannig að bæði eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:

  • Hver reitur í hnitakerfinu hefur annaðhvort ekkert kaffihús eða nákvæmlega eitt kaffihús. Heimili og vinnustaður Tommys geta ekki haft kaffihús.

  • Sama hvaða leið Tommy gengur í hnitakerfinu fer leið hans í gegnum nákvæmlega einn reit sem hefur kaffihús.

Einn macchiato á hverjum morgni -- aldrei engan, því hann þarf á honum að halda, og aldrei tvo, því hver hefur tíma í það? Hjálpaðu honum að hanna borgina svo hún uppfylli skilyrði hans!

Inntak

Fyrsta línan í inntakinu inniheldur eina heiltölu $t$ $(1 \le t \le 49)$, sem er fjöldi prófunartilfella.

Lýsingar á $t$ prófunartilfellum fylgja. Hvert prófunartilfelli samanstendur af einni línu með einni heiltölu $n$ $(2 \le n \le 50)$ sem er stærð borgarinnar sem Tommy er að skipuleggja.

Úttak

Fyrir hvert prófunartilfelli skal prenta út $n \times n$ hnitakerfi. Hvert tákn er annaðhvort . til að gefa til kynna reit án kaffihúss eða C til að gefa til kynna reit með kaffihúsi.

Ef það eru til margar gildar borgaráætlanir verður hvaða áætlun sem er samþykkt. Það má sanna að það er alltaf hægt að búa til gilda borgaráætlun.

Dæmi

Inntak 1

2
6
7

Úttak 1

.....C
....C.
...C..
..C...
.C....
C.....
.......
.......
.......
.......
......C
.....C.
....C..

Discussions

About Discussions

The discussion section is only for posting: General Discussions (problem-solving strategies, alternative approaches), and Off-topic conversations.

This is NOT for reporting issues! If you want to report bugs or errors, please use the Issues section below.

Open Discussions 0
No discussions in this category.

Issues

About Issues

If you find any issues with the problem (statement, scoring, time/memory limits, test cases, etc.), you may submit an issue here. A problem moderator will review your issue.

Guidelines:

  1. This is not a place to publish discussions, editorials, or requests to debug your code. Issues are only visible to you and problem moderators.
  2. Do not submit duplicated issues.
  3. Issues must be filed in English or Chinese only.
Active Issues 0
No issues in this category.
Closed/Resolved Issues 0
No issues in this category.