Lýsing
Gefinn er strengur $S$ af lengd $N$. Hver stafur í $S$ er einn af B, I, T, A, R eða O.
Ákvarðið hvort IOI komi fyrir sem (ekki endilega samfelld) hlutruna í strengnum $S$. Með öðrum orðum, ákvarðið hvort til sé þrennd af $3$ heiltölum $(i, j, k)$ sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
- $1 \le i < j < k \le N$.
- $i$-ti stafurinn í $S$ er
I. - $j$-ti stafurinn í $S$ er
O. - $k$-ti stafurinn í $S$ er
I.
Skilyrði
- $1 \le N \le 100$.
- $S$ er strengur af lengd $N$.
- Hver stafur í $S$ er einn af
B,I,T,A,ReðaO.
Inntak
Inntakið kemur úr staðalinntaki á eftirfarandi sniði:
N S
Úttak
Prentið Yes ef IOI kemur fyrir sem hlutruna í strengnum $S$, en No annars.
Dæmi um inntak og úttak
Inntaksdæmi 1
8 BITAROOI
Úttaksdæmi 1
Yes
- Þrenndirnar af $3$ heiltölum $(2, 6, 8)$ og $(2, 7, 8)$ uppfylla skilyrðin fyrir $(i, j, k)$ í dæmalýsingunni. Það er,
IOIkemur fyrir sem hlutruna í strengnum $S$, svo prentað erYes.
Inntaksdæmi 2
6 BBOOII
Úttaksdæmi 2
No
IOIkemur ekki fyrir sem hlutruna í strengnum $S$, svo prentað erNo.
Inntaksdæmi 3
5 IOIOI
Úttaksdæmi 3
Yes
Inntaksdæmi 4
9 RATRATRAT
Úttaksdæmi 4
No
Inntaksdæmi 5
1 A
Úttaksdæmi 5
No