Verkefni
Þú ert að leita að stjörnumerki á ljósmynd af stjörnuhimninum. Á ljósmyndinni er alltaf nákvæmlega ein mynd sem hefur sömu lögun, stefnu og stærð og stjörnumerkið sem þú vilt finna. Hins vegar er mögulegt að aukastjörnur, aðrar en þær sem mynda stjörnumerkið, sjáist á ljósmyndinni.
Til dæmis er stjörnumerkið á Mynd $1$ inni á ljósmyndinni á Mynd $2$ (dreginn er hringur utan um stjörnurnar). Ef hnitum stjarnanna í gefna stjörnumerkinu er hliðrað um $2$ í $x$-stefnu og $-3$ í $y$-stefnu fást staðsetningar þeirra á ljósmyndinni.
Þegar lögun stjörnumerkisins sem leitað er að og staðsetningar stjarnanna á ljósmyndinni eru gefnar, skrifið forrit sem finnur hve mikið þarf að hliðra hnitum stjörnumerkisins til að breyta þeim í hnitin á ljósmyndinni.
![]() |
![]() |
| Mynd $1$: Stjörnumerkið sem leitað er að | Mynd $2$: Ljósmynd af stjörnuhimninum |
Inntak
Á línu $1$ í inntakinu er fjöldi stjarna $m$ sem mynda stjörnumerkið sem leitað er að. Á næstu $m$ línum eru heiltölur aðskildar með bili sem gefa til kynna $x$-hnit og $y$-hnit þeirra $m$ stjarna sem mynda stjörnumerkið. Á línu $m+2$ er fjöldi stjarna $n$ sem sjást á ljósmyndinni. Á næstu $n$ línum eru heiltölur aðskildar með bili sem gefa til kynna $x$-hnit og $y$-hnit þeirra $n$ stjarna sem sjást á ljósmyndinni.
Staðsetningar allra $m$ stjarnanna sem mynda stjörnumerkið eru ólíkar. Einnig eru staðsetningar allra $n$ stjarnanna á ljósmyndinni ólíkar. Hér gildir $1 \le m \le 200$ og $1 \le n \le 1000$. Öll $x$-hnit og $y$-hnit stjarnanna eru stærri en eða jöfn $0$ og minni en eða jöfn $1000000$.
Úttak
Úttakið samanstendur af $1$ línu með $2$ heiltölum aðskildum með bili. Þær tákna hve mikið þarf að hliðra hnitum stjörnumerkisins sem leitað er að til að þau verði að hnitunum á ljósmyndinni. Fyrri heiltalan er hliðrunin í $x$-stefnu og seinni heiltalan er hliðrunin í $y$-stefnu.
Dæmi um inntak og úttak
Inntaks- og úttaksdæmi $1$ samsvarar myndunum hér að ofan.
Inntaksdæmi 1
5 8 5 6 4 4 3 7 10 0 10 10 10 5 2 7 9 7 8 10 10 2 1 2 8 1 6 7 6 0 0 9
Úttaksdæmi 1
2 -3
Inntaksdæmi 2
5 904207 809784 845370 244806 499091 59863 638406 182509 435076 362268 10 757559 866424 114810 239537 519926 989458 461089 424480 674361 448440 81851 150384 459107 795405 299682 6700 254125 362183 50795 541942
Úttaksdæmi 2
-384281 179674

